top of page

Björgvin nýr formaður FHG

  • Jun 11
  • 1 min read

Á fundi stjórnar Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu þann 28. maí síðastliðinn var Björgvin Jóhannesson kjörinn nýr formaður FHG.  Hann tekur við af Kristófer Oliverssyni sem hefur gegnt formennsku frá stofnun FHG 2018.


Björgvin er hótelstjóri á Hótel Selfossi og Hótel SouthCoast og hefur setið í stjórn FHG frá árinu 2023. Hann var varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins 2021 til 2024 og settist þrisvar á þing á því tímabili. Björgvin er frá Höfðabrekku í Mýrdalshreppi, þar sem hann var hótelstjóri á Hótel Kötlu um árabil.

 

Á fundinum var Hjörtur Valgeirsson hjá Íslandshótelum endurkjörinn varaformaður stjórnar og Jóhann Pétur Reyndal hjá Hótel Valaskjálf og Hótel Hallormsstaður endurkjörinn gjaldkeri. Þá var Steinþór Jónsson hjá Hótel Keflavík kjörinn ritari.

 

Nýkjörinn formaður þakkaði Kristófer fyrir hönd stjórnar fyrir hans miklu og óeigingjörnu störf í þágu samtakanna og sagðist treysta á að samtökin gætu áfram leitað í hans reynslubanka.



 
 
 

Comments


Commenting on this post isn't available anymore. Contact the site owner for more info.

Hafðu samband

Fyrir nánari upplýsingar um aðild að FHG

Bankaupplýsingar:
0515-26-680918 

Kennitala: 

680918-0150

Fylgdu okkur á 

  • Facebook Social Icon
bottom of page