Umsögn FHG um fjárlagafrumvarpið

Meðfylgjandi er umsögn FHG um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027, en frumvarpið inniheldur m.a. tillögur um krónutöluhækkun gistináttaskatts og upptöku nýs náttúrugjalds.
Úr greinargerð fjárlagafrumvarps:
Sem fyrr er gert ráð fyrir hækkun krónutölugjalda á milli ára. Miðað er við að gjöldin hækki um 5,2% sem er til samræmis við verðbólgu í árslok 2026 í þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands sem liggur til grundvallar frumvarpinu. Breytingin nær til áfengis-, tóbaks- og nikótíngjalda, kolefnisgjalds, gistináttaskatts, innviðagjalds, bifreiða- og kílómetragjalds auk útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra. Tekjuáhrif breytinganna á krónutölugjöldum eru í heild 6,5 ma.kr. að meðtöldum hliðaráhrifum á virðisaukaskatt.
Unnið er að útfærslu á gjaldtöku á ferðamannastöðum sem eru í eigu þjóðarinnar. Markmiðið með gjaldtökunni er að stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið og tryggja réttlát auðlindagjöld. Með því er jafnframt stuðlað að verndun náttúrunnar og sjálfbærri nýtingu hennar sem er ein af grunnforsendum ferðaþjónustu til lengri tíma. Gjaldið er í samræmi við stefnuyfirlýsingu stjórnvalda um að taka upp auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands. Áætlaðar tekjur af hinu nýja gjaldi árið 2027 eru 5 ma.kr.
Sjá umsögn FHG hér.



Comments