top of page

Fundur um sviðsmyndir um starfsumhverfi íslenskrar ferðaþjónustu.



Á miðvikudaginn 28. október frá kl. 9:00-10:30 halda KPMG, Ferðamálastofa og Stjórnstöð ferðamála, rafrænan kynningarfund á sviðsmyndum um starfsumhverfi íslenskrar ferðaþjónustu á komandi misserum. Sviðsmyndirnar voru gerðar með aðkomu aðila með sérþekkingu á starfsumhverfi greinarinnar.


Markmið þessarar vinnu er að draga fram þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir þannig að hægt sé að meta, og forgangsraða viðeigandi aðgerðum svo samræmi sé milli ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs um þær.


Dagskrá:


Opnun og kynning Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri


Erindi ráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamálaráðherra


Kynning KPMG á sviðsmyndunum Sævar Kristinsson og Steinþór Pálsson, sérfræðingar KPMG


Pallborð Kristrún Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku banka, Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair og Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.


Fundinum verður streymt á Youtube hlekk sem sendur verður til skráðra þátttakenda á þriðjudag.



KPMG, Ferðamálastofa og Stjórnstöð ferðamála


bottom of page