Jóhann Páll á aðalfundi FHG
- 4 days ago
- 2 min read

Aðalfundur FHG 2026 var haldinn 29. apríl síðastliðinn. Jóhann Páll Jóhannsson orku-, loftslags- og umhverfisráðherra var gestur aðalfundar. Hann sagði að ríkisstjórnin ynni markvisst að því að að einfalda stjórnsýslu og draga úr flækjustigi Meðal annars lægi fyrir frumvarp um breytingar á heilbrigðiseftirliti sem miðar að því að færa eftirlit í skýrari og samræmdari farveg með það að markmiði að einfalda rekstur fyrirtækja. Þá sagði hann eitt af stóru verkefnunum á sínu borði vera að koma ramma utanum vindorku. Hluti af því fælist í að banna vindorku á verðmætum náttúrusvæðum. Markmiðið sé að vindorkan verði á fáum og afmörkuðum svæðum og falli inní rammaáætlun. Hann sagði einnig að staða mála í Mið-Austurlöndum undirstriki mikilvægi þess að hraða orkuskiptum. Ráðherra sagði ríkisstjórnina hafa sett af stað átaksverkefni í að fjölga hleðslustöðvum um landið, sem m.a. fæli í sér að styðja við uppbyggingu hleðslustöðva við gististaði. Markmiðið sé að hringvegurinn og helstu tengileiðir væru vel þjónustaðar og hver þéttbýlisstaður hafi aðgang að hraðhleðslu.

Ráðherra sagði það besta sem hægt væri að gera fyrir ferðaþjónustuna væri að auka náttúruvernd. Hans leiðarljós í starfi væri að ná betra jafnvægi milli verndar og nýtingar. Þá sagði ráðherra að á vegum ríkisstjórnarinnar væri í gangi vinna að undirbúningi gjaldtöku inn á vinsæla ferðamannastaði og stefnt væri að því að hluti þeirra tekna rynni til markaðssetningar á áfangastaðnum Íslandi. Aðspurður um að 90% félagsmanna FHG teldu afstöðu ríkisstjórnarinnar til ferðaþjónustu frekar eða mjög neikvæða sagði Jóhann Páll að það væri verkefni fyrir ríkisstjórnina að breyta því viðhorfi.
Ný skoðanakönnun FHG
Á aðalfundi FHG kynnti Kristófer Oliversson formaður FHG niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar meðal félagsmanna.
Helstu niðurstöður hennar voru þessar:
Hvernig metur þú horfurnar í rekstrinum næstu 6 mánuði?

Telur þú að notkun gervigreindar muni skipta máli fyrir þinn rekstur næstu misseri?

Hvernig finnst þér opinber markaðssetning stjórnvalda á Íslandi sem áfangstað?

Hvernig sérðu afstöðu núverandi ríkisstjórnar til ferðaþjónustunnar?

Ný stjórn FHG
Á aðalfundinum voru eftirtalin kjörin í stjórn FHG kjörtímabilið 2026 - 2027
Bergrós Guðbjartsdóttir – Hótel Akureyri
Björgvin Jóhannesson – Hótel Selfoss
Árný Hlín Hilmarsdóttir – Berjaya Hotels
Geir Gígja – Cabin Hotels
Halldór Hafsteinsson – ION Hotels
Hjalti Sverrisson – Hótel Arnarstapi
Hjörtur Gíslason – Courtyard by Marriott
Hjörtur Valgeirsson – Íslandshótel
Hrefna Sverrisdóttir – Knox Hotels
Jóhann Pétur Reyndal - Hótel Valaskjálf/Hótel Hallormsstaðir
Kristófer Oliversson – Miðbæjarhótel/Center Hotels
Páll Sigurjónsson – KEA Hotels
Skúli Gunnar Sigfússon – Hótel Jökulsárlón
Steinþór Jónsson – Hótel Keflavík
Sveinn Hreiðar Jensson – Hótel Klaustur
Valgerður Ómarsdóttir – Radisson Blu 1919 Hótel



Comments